Nýr Seðlabankastjóri ráðinn

Veit ekki hvaðan þessi frétt er en nokkuð sannfærandi..
Davíð og Konni voru hressir á blaðamannafundinum

Davíð Oddsson tilkynnti í dag um ráðningu nýs Seðlabankastjóra í stað Finns Ingólfssonar sem sagði starfi sínu lausu á dögunum. Var það búktalaradúkkan Konni sem hlaut starfið eftirsótta, en hann gerði á sínum tíma garðinn frægan með vini sínum Baldri.

"Þetta er hárrétt val hjá mér," sagði Davíð á blaðamannafundi í dag. "Konni er þjóðinni að góðu kunnur og nýtur trausts hennar. Ég er ekki í nokkrum vafa um að hann eigi eftir að taka réttar ákvarðanir í starfi."

Konni kveðst afar ánægður með nýja starfið. "Davíð er alveg frábær," sagði hann glaður. "Hann er sko langbesti stjórnmálamaður allra tíma, í öllum heiminum!"

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Mikið rétt hjá Konna Davíð er bestur.

Rauða Ljónið, 9.10.2008 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband