Og sagan heldur áfram.

Þetta er alveg með ólíkindum að svona geti gerst,  Finnur bankastjóri ber sem sagt fullt traust til Bónus-bangsanna.  Ætlar fólk virkilega að láta þetta yfir sig ganga?

Ég spyr, hvernig ætla þessir kri.... að greiða af 60.000 miljóna láni ?   Þeir borga það náttúrlega ekki heldur við neytendur.  Leikurinn heldur áfram. 

Ætlar fólk virkilega að láta þetta yfir sig ganga?

Því er alltaf haldið að okkur almenningi að það hafi verið við sem orsökum þetta ömurlega ástand sem nú er með því að taka þátt í neyslunni, þetta er bull.  Það vorum ekki við sem fengum lán án ábyrgðar til að auka veltu bankanna sem síðan úthlutuðu bónusum til eigenda og stjórnenda fyrir vel unninn störf.  Þetta er viðbjóður þegar maður hugsar um þetta.

Erum við algerir aumingjar, það finnst Jóni Ásgeiri.


mbl.is Kaupþing og 1998 formlega í eina sæng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska leiðin ?

Það mæti halda að þeir notuðu sama stílinn í S. Kóreu og hér.  Hér er þetta miklu fremur próf í lesskilningi heldur en í umferðafræðslu.

Er það t.d. eðlilegt að fall hlutfall hér er 40-50% í fyrstu tilraun ?  Hverjum er um að kenna, prófhöfundum eða ökukennurum ?  Ég legg til að menn fari að hafa spurningarnar á mannamáli en ekki uppfullt að gildrum sem virðast vera eingöngu til að leggja stein í götu nemans.

Þetta er heldur ekki gefið hér, 950 tilraunir kosta 2.280.000.- eða 2.400.- hver tilraun.

 


mbl.is Náði skriflega prófinu í 950. tilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í takt við tímann.

Ég viðurkenni það fúslega að ég er alls ekki nógu klár til að stunda svo þjófnað þannig að ég er ekki að verja eigin gjörðir.

Ég viðurkenni það líka að ég er orðin langþreyttur á þessu eilífa væli í Smáís og spyr hversvegna þeir eru alltaf að berjast við vindinn, þetta er "no win situation".  Hversvegna taka þeir ekki bara tæknina í sínar hendur og selja niðurhal á þáttum og myndu gegn vægu verði eins og mér skilst að sé víða erlendis.

Ég spyr einnig hver réttarstaða mín sé til að hala niður (hvernig sem það er gert) sem áskrifandi að stöð tvö og þar af leiðandi búin að greiða fyrir efnið?


mbl.is Fangavaktinni stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt attitude !

Heldur finnst mér attitude dómsvaldsins hafa breyst, er það vegna almenningsálits ? 

Áður átti réttlætið undir högg að sækja vegna klókinda og málavafsturs auðvaldsins en núna vonandi nær réttlætið að rétta úr sér.

Ég spyr í framhaldi af myndbirtingu með fréttinni  hver brosir núna ?

Essasú Jón ?

 


mbl.is Hafnar kröfu verjenda í Baugsmálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gera markaðsmenn núna?

McDonalds vörur eru oft notaðar þegar verið er að benda á hvernig vörur og þjónusta eigi að vera það er að bjóða alltaf uppá sömu vöruna án breytinga á bragði og eða útliti dag frá degi.

McDonalds er langt frá því að vera góður skyndibiti og hann er alltaf jafn vondur þannig að þú þarft ekki að svekkja þig á honum því þú veist að hverju þú gengur.

Nú bjóða þeir væntanlega uppá alvöru hamborgara hjá "Metro".


mbl.is Frétt af hvarfi McDonalds frá landinu vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða hvaða...

Ef ekki hefur verið nein hætta á ferðum hversvegna þá forgang ? 

Ef engin hætta á ferðum hversvegna lenda þeir  ekki bara á öðrum hreyflinum alltaf ?

 


mbl.is Flugvél Iceland Express bilaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefgjöld

Þetta virðist vera fjölþjóðlegt fyrirbrigð þessi árásargirni Stefmanna og kollega.  Það líður væntanlega ekki á löngu þar til Magnús Kjartans og félagar komi hingað inn og rukki mig fyrir að raula ( því ég er jú laglaus) gamla slagara.

 


mbl.is Var bannað að syngja í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerða snauða ríkisstjórnin.

Meðan Ríkisstjórnin hefur verið upptekinn af því að ganga á milli bols og höfuðs á millistéttinni sem borgar jú skatt og skuldir þeirra efnameiri hafur auðvaldið dundað sér við að losa sig undan ábyrgðum.

Það er skömm að því hvernig VG og Samfylkingin hefur brugðist því trausti sem fólkið í landinu  sýndi þeim við síðustu kosningar.  Það er von mín að slíkt gerist aldrei aftur.


mbl.is Flestir lykilmennirnir farnir frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða, hvaða.

Það er deginum ljósara að lyftufundur græna kommans hefur ekki skila árangri...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Rússar hafna láni til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með trýnið uppí loftið !

Ég bið fyrir þeim sem þurfa að eiga samskipti við þennan hroka gikk. 

Gangandi um með trýnið uppí loftið þannig að hún hálf drukknar í rigningu.  Hún á eftir að sprengja allt í loft upp og þá stjórnar hún ekki mótmælendum eins og um árið heldur verða pottarnir barðir með henni. (Líkingar mál )


mbl.is Álfheiður verður ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband