Tölvan er vafasöm barnapía það hefur sýnt sig.
Það er erfitt að skilja hvernig þeir fara að þessu perrarnir, fá 10 ára barna til að hátta sig ?
Það á að útríma vefmyndavélum úr barnaherbergjum það er mitt álit, foreldrar eiga líka að taka ábyrgð á þessum hlutum.
![]() |
Fékk stúlku til að afklæða sig framan við vefmyndavél |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 17.10.2008 | 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mig langar að deila með ykkur sem ætlið með Bubba ( B.O.B.A) til Köben eftirfarandi.
Þetta á reyndar ekki erindi til þeirra sem ekki nota vímuefni. ( áfengi og þess háttar)
Góð kunningja hjón mín fóru til Köben og voru þar um síðustu helgi, löngu ákveðin ferð. Þau voru svo fyrirhyggjusöm að þau keypti vínið og bjórinn í Duty-free hér heima og spöruðu sér stórfé. Danska krónan er rúmar 20 krónur þannig að bjórinn er orðin ansi dýr. Ef þið ætlið að fara út að versla þá takið Bubba ( boxara ) með ykkur því við erum víst ekki vel liðin þarna ytra sem ég reyndar skil ekki þökk sé útrásarliðinu.
Þetta er álíka og að ef nágranni minn væri nauðgari þá væri ég grýttur fyrir það.
![]() |
Engin kreppa hjá Bubba í Köben |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 16.10.2008 | 09:59 (breytt kl. 10:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eitt helsta verkefni blaðamanna þessa dagana er að draga upp neikvæðar fréttir. Þessi toppar þær margar.
Þetta er án efa sett fram til að réttlæta ofsafengna framkomu forsætisráðherra breta.
![]() |
Makleg málagjöld" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 15.10.2008 | 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er aldrei gott að missa vinnuna, vægast sagt ömurlegt. Það vigtar kannski lítið að segja fólki að hugsa jákvætt og líta á þetta verkefni sem áskorun en það er samt svo.
Þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar. Einhvertímann var mér bent á að það sem einum finst dauðans alvara finnst öðrum bara fyndið og létt vægt, t.d. þegar kærastan sagði mér upp og mér fannst allt hrunið var mér bent á að nóg væri af fiskum í sjónum. Ég hélt að ég mundi deyja úr sorg en í dag á ég yndislega konu og börn og fallegt heimili sem kannski verður ógnað með atvinnu missi en það er seinnitíma staða sem ég verð að takast á við þá.
En til ykkar sem standið frami fyrir þessum aðstæðum í dag, fulla ferð og láttið ekki hugfallast.
![]() |
Tæplega 100 missa vinnuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 15.10.2008 | 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég tel að best væri að senda Þórunni í langt frí og það sem fyrst. Það þarf að halda hjólum atvinnulífsins gangandi til að forðast atvinnuleysi, ekki heldur svona kjaftæði lífi í landanum.
Það voru eftirlitsmenn og stjórnendur landsins sem sitja sumir á hinu háa alþingi sem sofnuðu á verðinum og allir vita hvernig fór.
Nú þýðir ekkert he.....s umhverfis kjaftæði þjóðarskútan er að sökkva og okkur vantar trog til að ausa.
Þegar hallinn verður orðin réttur af ættu Þórunn og co að sitja vaktina og passa að ekki fari svona aftur.
Veit samt ekki hvort ég treysti henni í verkið, hvað kostaði Ísbjarnarskinnið aftur?
![]() |
Allt í fína á Bakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 13.10.2008 | 20:58 (breytt kl. 21:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Geir eða Ólafur Ragnar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 13.10.2008 | 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kemur hingað fljúgandi á einkaþotunni með Greenarann í farteskinu og ætlar að kaupa sig út fyrir 1/3 af því sem hann skuldar bankanum.
Hann sagði meðal annars að hann muni ekki láta það gerast að gefa eigur sínar í burtu. Hvað með fólkið sem seldi fyrirtæki sín og keypti bréf í bankanum, fólkið sem var að minka við sig húsnæði og lagði það sem á milli kom í hlutabréf, á það að söfera fyrir þig skúrkurinn þinn?
Nú ætlar hann að innheimta greiðana sem hann og fyrirtæki hans gerðu fyrir ISG og Samfylkinguna sem búin eru að vera borða úr lófa þeirra, flugferðirnar með Dorit og Ólaf sem er bara skandall útaf fyrir sig og eru án efa fleiri en við vitum vegna þess að þau voru ekki gripin.
Það væri pólitiskt Hara Kiri fyrir Björgvin G, Sigurðsson og Samfylkinguna að semja við þessa "Dímona"
![]() |
Jón Ásgeir: Fær ekkert út úr sölunni á Baugsfyrirtækjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 12.10.2008 | 17:33 (breytt kl. 17:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvaða tilgangur er með svona fréttaflutningi, æsa upp óstöðuga ? Eru stjórnvöld ekki búin að segja að innistæður séu tryggðar fréttamönnum væri nær að sitja fréttamannafund Geirs á ensku og læra af kollegum sínum hvers á að spyrja og hvað skiptir máli.
Hættið nú að slá um ykkur með svona asnalegum fyrirsögnum og reynið frekar að vanda ykkur peppa fólk upp, það veitir ekki af.
![]() |
Aleigan í 2 Bónuspokum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 10.10.2008 | 17:39 (breytt kl. 17:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Glitnir hefur haft nokkuð margar konur við stjórn útibúa sinna síðastliðin ár og er ekkert nema gott um það að segja.
Ég er einn af þeim sem hef frekar viljað að menn ( konur) fengju ábyrgðarstöður fyrir hæfni sína frekar en kynferði, samt finnst manni hitt ráða stundum.
Þegar Íslandi dag kynnti 3 hagfræðinga í gærkveldi sem allir voru konur sagði ég við sjálfan mig " O my God" hvað nú. Spyrillinn byrjaði: ef konur hefðu verið við stjórn hefði þetta þá farið svona ? Svar: nei og ég sagði við sjálfan mig " O my God"
Síðan hélt spjallið áfram og að lokum hafði ég fyllst af slíku stolti og bjartsýni og skoðun mín á kvenhagfræðingum snúist 180 gráður. Þarna voru komnar alvöru manneskjur sem stöppuðu þvílíkt í okkur stálinu. Læt hér fylgja með linkinn að spjallinu: http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=&programID=b2fab606-e8f9-4500-a4d9-15008d8978da&mediaSourceID=1f4bab16-553d-4836-8898-b0c763e5ba07&mediaClipID=447b23c0-a3b7-43ad-ba9c-88d9b5acbc15
![]() |
Birna verður væntanlega bankastjóri Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 10.10.2008 | 14:59 (breytt kl. 15:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Starfsmenn bankans eru vissulega ekki öfundsverðir og afar stór hluti þeirra mun þurfa að finna sér annað lífs viðurværi sem ekki er övundsvert á þessum tímum.
Annar hópur eru viðskiptavinir bankans, þeim líður illa líka og eflaust sárir að hafa fengið sumir rangar upplýsingar þegar stofnað var til viðskipta við bankann.
En örvæntum ekki, þegar einar dyr lokast opnast aðrar. Nú er nóg komið af neikvæðum fyrirsögnum fjölmiðla.
Höfum að leiðarljósi gildin 3. trú, von og gleði.
![]() |
Bankamenn í tilfinningarússi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 10.10.2008 | 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar