
![]() |
Krefjast staðgreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.10.2008 | 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Davíð Oddsson tilkynnti í dag um ráðningu nýs Seðlabankastjóra í stað Finns Ingólfssonar sem sagði starfi sínu lausu á dögunum. Var það búktalaradúkkan Konni sem hlaut starfið eftirsótta, en hann gerði á sínum tíma garðinn frægan með vini sínum Baldri.
"Þetta er hárrétt val hjá mér," sagði Davíð á blaðamannafundi í dag. "Konni er þjóðinni að góðu kunnur og nýtur trausts hennar. Ég er ekki í nokkrum vafa um að hann eigi eftir að taka réttar ákvarðanir í starfi."
Konni kveðst afar ánægður með nýja starfið. "Davíð er alveg frábær," sagði hann glaður. "Hann er sko langbesti stjórnmálamaður allra tíma, í öllum heiminum!"
Dægurmál | 9.10.2008 | 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað er að þessu liði? Spyrjandi um jafnréttisstefnu og hvort þeir væru nógu samstíga.
Hvað með spurningar eins og stýrivexti og aðrar þar að lútandi, það er fleira fréttamatur en þessi endalausa umfjöllun um stórtap þotuliðsins.
Spurningar um tyggingu sjóða hins almenna borgara.
Jafnréttisstefna (LOL) á þessum síðustu og verstu tímum. Sendum Umhverfisráðherra í langt frí og sprautum lífi í efnahagslífið á ný, upp með bakka og álver í Helguvík og ekkert kjaftæði !
Nýtum íslensku sauðkindina eins Ólafur Ragnar sagði, kaupum íslenskt.
![]() |
Mjög óvinveitt aðgerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.10.2008 | 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það var úthrópað að Davíð hafi hlaupið af stað með Rússagulls fréttina, hann baðst afsökunar á því síðar.
Nú kemur fram að A. Darling fjármálaráðherra Bretlands, "skildi Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra þannig", hvað er að þessum mönnum ? Hvað er að þessum heimi ? Eins og fram hefur komið reynir Gordon Brown að leiða athyglina frá sér og grípur þetta fengins hendi.
Það sem kemur mér mest á óvart í þessu öllu er hvað þetta var allt byggt á veikum grunni.
Fyrir þá sem eru að fyllast svartsýni langar mig að vitna í orð Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts:
"Hafðu ekki áhyggjur af því, að heimurinn sé að farast í dag. Það er nú þegar morgun í Ástralíu."
![]() |
Samtal við Árna réð úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.10.2008 | 13:54 (breytt kl. 14:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta eru nýskipaðir bankastjórar Seðlabankans. Þeir koma í fyrramálið á Illjusin einkaþotu.
Við bjóðum þá velkomna til starfa og megi gæfa fylgja ákvörðunum þeirra.
Nýir bankastjorar Sedlabankans...Vasilín og Pensilín
![]() |
Um 500 missa vinnuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.10.2008 | 10:46 (breytt kl. 10:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég átti leið um Suðurlandsbraut í dag eins og svo oft. Þegar ég var á móts við Gunnar Ásgeirsson sá ég líka þennan fína Range Rover ( Hang over ) fyrir framan mig og aftan í honum kerra með spánýja frystikistu.
Mín fyrsta hugsun var að þessi hlyti að geta fyllt hana af kosti á "hamstursdögum" í Bónus.
Ég ætla ekki að sverja það en ég gat ekki betur séð en þar væri kominn Bubbi karlinn. Hann er auðsjáanlega hagsýnn eða ætlar kannski að fara semja frystikistublús.
"Fulla ferð Bubbi, þú ert bestur."
![]() |
Fjöldi fólks á mótmælasamkomu Bubba |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 8.10.2008 | 17:47 (breytt kl. 17:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bara á Íslandi getur utanaðkomandi maður gengið að forsætisráðherra og afhent honum mótmælabréf óáreittur hann hefði getað verið með hníf eða byssu og enginn hefði gert neitt fyrr enn allir lægju í valnum. Svipað atriði gerðist við Tjörnina í fyrra.
Halló ! ég er búin að sitja og hlusta á Geir & co og er alveg jafn LOST eins og áður.
Þetta er með allra lélegasta fréttamannafundi sem ég hef hlustað á, bjuggust þeir ekki við fyrirspurnum fyrir okkur sem sitjum heima og hlustum er eins og Geir sé á eintali þar sem ekki er gert ráð fyrir hljóði á spyrlana.
![]() |
Viðskipti milli landa verða tryggð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 8.10.2008 | 16:48 (breytt kl. 16:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég óttast múgæsingu, þegar svona dynur yfir virðist fólk eiga erfitt með að hugsa skírt og taka skynsamlegar ákvarðanir.
það er erfitt að segja að maður eigi bara að halda ró sinni þegar tilfinningarnar eru í rússíbanareið. Það er erfitt að átta sig á hvað er að gerast, um leið og maður er að ná niðurstöðu brestur næsta bylgja yfir.
Nú er Gordon Brown orðin vitlaus, Bretar hafa mikil áhrif innan Evrópubandalagsins sem gæti sett á okkur viðskiptabann um tíma.
Hvað ætli Geir tilkynni þjóðinni núna klukkan 16 ?
![]() |
Ekki hægt að halda gengi föstu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 8.10.2008 | 13:10 (breytt kl. 13:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
að við ( ríkið það er ég og þú ) beri ábyrgð á bankarekstri útrásarmannanna erlendis ?
Einhverjir hafa áhyggjur af því að við styggjum vinni okkar erlendis, segir ekki einhver staðar að enginn er bróðir í leik.
Það er mikill hefndar þorsti í mönnum þessa daganna og vilja menn fara að draga mann og annan til ábyrgðar, þessir menn koma aldrei til með að bæta eitt né neitt, gleymið þessu bara.
Fortíðin mun bíta þá í afturendann á endanum.
![]() |
Blaðamannafundi frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 8.10.2008 | 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég vorkenni aumingjns starfsmönnum bankanna sem þurfa að sitja í frontinum og svara fyrir bankana, það er alveg öruggt að laun þeirra miðast ekki við það álag.
![]() |
FME tekur Glitni yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 8.10.2008 | 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar