Það dúkka upp óvæntir bjargvættir aftur og aftur þessa dagana.
Hvern hefði órað fyrir því að Íbúðalánasjóður kæmi okkur til bjargar? Ekki mér, ég trúði því og treysti að þessir trúðar í bönkunum væru betur innstilltir en raun ber vitni.
Hvern hefði órað fyrir því að Rússar kæmu okkur til bjargar á ögurstundu, ég hafði aldrei hugleitt það.
Hverjir eru það sem Geir vildi ekki nafngreina ? Mín kenning er: Bandaríkjamenn, Bretar, Þjóðverjar en eins og áður hefur verið sagt þá er engin bróðir í leik.
Það held ég að Bandaríkjamenn komi til með að naga sig í handabökinn núna, farnir með varnarstöðina og nú þetta.
" Putin if you need you can tank your plains in Keflavik "
Your new friends in north.
![]() |
Þurfum að leita nýrra vina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 7.10.2008 | 12:19 (breytt kl. 12:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið ætlar þetta að vera löng fæðing að einhverju sem er svo alvarlegt að enginn treystir sér til að tjá sig um það.
Sáttahönd Steingríms visnar með hverjum klukkutímanum, sátt um hvað?
Það væri óskandi að fréttamenn væru eins ágengir eins og kollegar þeirra í Noregi, það væri gaman ef þessir Baugsfréttamenn fyrir gefið ég meina stöð2 fréttamenn fylgdu spurningum sínum eins vel eftir. Viðmælandinn hefur haldið að hann væri staddur á Íslandi þar sem menn komast upp með svona froðusvör.
Og ég bíð og ég bíð og óttast mest að þetta verði ein froðan enn, hvenær er komið "síðar í dag" ?
Ég hélt að þessir lýðræðiskjörnu þingmenn væru líka bundnir trúnaði við okkur fólkið í landinu.
![]() |
Alvarlegri en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 6.10.2008 | 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tíu merki þess að þú sért Talibani.
10. Þú vinnur við að hreinsa heroin en hefur andúð á bjór.
9. Þú átt 300$ vélbyssu og 5000$ sprengjuvörpu en hefur ekki efni á skóm.
8. Þú átt fleiri konur en tennur.
7. Þú heldur að það séu bara til tvær gerðir að vestum, Skotheld og sjálfsmorðsvesti.
6. Þér dettur engan í hug sem ekki er andstæðingur JIHAD.
5. Þú telur sjónvarp hættulegt, en berð skotfæri í sloppnum þínum.
4. Þú hefur aldrei verið spurður : Virðist rassinn á mér stór í þessum burka ?
3. Þú varðst steinhissa þegar þú uppgötvaðir að gemsann má nota til annars en að setja í gang sprengju.
2. Algengt hrós til þín er : mér líst vel á hvað þú hefur gert við hellinn þinn.
Og númer eitt sem gæti gefið til kynna að þú ert TALIBANI:
1. Þú skeinir þér með berri hendinni en telur skinku vera óhreina.
Dægurmál | 6.10.2008 | 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Efnahagsástandið hér virðist vera næring í æðar fjölmiðla.
Það þarf enga innlenda eða erlenda blaðamenn til að segja okkur hvernig ástandið er orðið. Við vitum að það eru erfiðir tímar, en við erum ekki dauð úr öllum æðum.
Ég hélt að ég ætti aldrei eftir að segja það opinberlega en " ég er sammála Steingrími J. að við verðum bara að snúa bökum saman og leysa þessi mál, án skítkasts og flokkadeilna.
Pössum svo bara uppá að þessir miljónakarlar komist ekki aftur í sjóðina okkar.
Erlendir fréttamenn eru af sama sauðahúsinu og þeir íslensku, nærast á kjaftasögum og því sem illa fer. Þeir ættu frekar að nota krafta sína í að finna eitthvað jákvætt og blása það út að sama krafti og þeir hafa eytt í niðurbrotið.
ÁFRAM 'ISLENDINGAR VIÐ VINNUM ÞENNAN SLAG VIÐ ERUM BEST
![]() |
Veislan búin á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 5.10.2008 | 10:48 (breytt kl. 10:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er spurning hverjum skal trúa og treysta. Fréttamenn flytja fréttir af hverjum þeim sem vill spá eða tjá sig um hvaðeina í þessum efnahagsmálum.
Hverjum á að trúa, hagfæðingum við HÍ sem eru brigslaðir um að vilja vekja athygli á sér, Davíð Odds sem margir eru tilbúnir að gangrýna, án þess að þurfa skíra mál flutning sinn, fréttamönnum sem eru að spyrja í tíma og ótíma spurninga vegna kjaftasagan utan úr bæ ? Svona rugl veldur ótta og hræðslu manna.
Þessu verður að linna, menn verða að fara sía út kjaftaganginn og skíra frekar frá áreiðanlegum heimildum.
p.s. læt fylgja hér með smá kjaftó sem ég heyrði í gær:
Það á að hafa sést til Davíðs klöngrast uppí einkaþotu með fjóra tóma Bónus-plastpoka til að ná í gjaldeyrir.
Nefnið tvær staðreyndarvillur í þessari:
Rétt svar:
- Davíð léti aldrei fréttast af sér í einkaþotu.
- Bónus-plastpokar jé right !
![]() |
Róbert Wessman vill Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 4.10.2008 | 15:04 (breytt kl. 15:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"What go's around come's around" ( fortíðin bítur þig í rassinn)
Þetta orðatiltæki á vel við þennan mann. Þessi maður er verulega vanstilltur og er best geymdur á bakvið lás og slá.
Ætli " the black community" reyna að koma honum til bjargar aftur ? Ég vona að hann komist ekki aftur undan enda fundinn sekur í 13 ákæruliðum ef ég taldi rétt.
![]() |
O. J. Simpson sekur um vopnað rán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 4.10.2008 | 13:27 (breytt kl. 13:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er meiri maður sem getur beygt af fyrri yfirlýsingum sínum. Ég er viðskiptavinur Glitnis og hef verið Útvegsbanka maður frá 1975, ég vona að banki nái trúverðugleika sínum á ný.
Skömm sé þeim sem tala óábyrgt um efnahagsmálin, ég er viss um að svona yfirlýsingar geta auðveldlega ært óstöðugan.
Ég er sammála Sigurði Einarssyni að þetta er gjaldþrota hagfræðingana hjá HÍ og endur tek ég að að allir betri hagfræðingar landsins séu starfandi hjá seðlabankanum.
Ekki trúi ég því að menn haldi að Davíð sitji einn þarna með reiknistokkinn og talnagrindina.
![]() |
Hvetur hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð ríkisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 3.10.2008 | 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ATH bæði mynd og texti eru stolinn.
Dægurmál | 1.10.2008 | 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig stendur á því að þessir Glitnismenn koma fram núna og gagnrýna eigin gjörninga og kenna öðrum um.
Var Þorsteinn tekinn á beinið af Jóni Ásgeri? Það er ekki sterkur maður í stjórnun sem kemur til baka eftir á og kennir Davíð um allt.
Minni en og aftur á " Glitnir kom til Seðlabanka og ríkisins en ekki öfugt."
![]() |
Jón Ásgeir: Sagði að þetta yrði feigðarför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 1.10.2008 | 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég vill engum svo illt að verða gjaldþrota en mikið ósköp er ég orðin leiður á þessum samsæriskenningum.
Það kom mér ekki á óvart þegar það fréttist að einn stjórnarmanna Stoða eða fleiri hafi ekki verið með í ráðum þegar send var yfirlýsing frá þeim í gærkveldi, voru þetta ekki einræðistilburðir hjá þeim sem undirrituðu?
Fegin er ég að ríkið lánaði ekki Glitni því við hefðum aldrei séð það fé aftur þegar pappírskarlarnir og loftbólugengið væri búið að koma því undan í formi starfslokasamninga og bónusa.
Þeir ættu að fara að fordæmi þeirra Hagvirkismanna hjá Stoðum og fara að svara í síma:
STOÐIR - FÓRNARLAMBIÐ GÓÐAN DAG
![]() |
Telur Stoðir ekki fara í þrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 30.9.2008 | 08:58 (breytt kl. 09:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar