Ekkert óeðlilegt..

Ég tel það ekkert óeðlilegt þó Strætó B.S. reyni að hafa umsjón með farþegum sínum meðan ekki er búið að samþykkja að allir fái frítt.  Það að vera útlendingur þarf ekki alltaf að þýða það að það eigi að gefa þeim allt  frítt síst þegar við skattgreiðendur og þegnar landsins fáum það ekki.

Rekstur strætó er ekki ókeypis, það kosta mikið fé.  Hér á blogginu er verið að bera saman Akureyri og fleiri smærri bæjarfélög þar sem örfáir vagnar eru í umferð og vegalengdir stuttar, það er ekki sanngjarnt. 

Einn talar um að ungt fólk neyðist til að koma hingað til náms, það er sjálfsagt að það fái ókeypis í strætó ef bæjarfélag þeirra er tilbúið að greiða fyrir það, það er ekki sjálfgefið að það sem ég borga í bæjarsjóð sé notað til að greiða það.

Mig langar að rukka Kópavogsbæ um eitt af útspilum þeirra í leit að vinsældum, allir Kópavogsbúar áttu að fá endurgjaldslaust í strætó frá síðust áramótum, en hefur ekkert gerst í því, var þetta kannski bara plat eins og venjulega ?

 Það er gott að búa í Kópavogi eða hvað ?


mbl.is Fá ekki nemakort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavegur í Reykjavík

Þetta gerðist á Reykjavegi í Reykjavík, gatan milli Suðurlandsbrautar og Sundlaugavegar. ( Laugardalsvöllur stendur við Reykjaveg)
mbl.is Eldur í tveimur bifreiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólíkur vandi á höndum.

Viktoría hugsar vel um augabrýrnar sem að er gott, minn vandi er annarskonar.old man

Fyrir nokkrum árum sagði samstarfsmaður minn við mig, þú ert ekki orðin gamall karl taktu hárið úr eyrunum.

Ég er búin að reyna allar gerðir af klippum til að halda eyrum og nefi í horfinu með mis góðum árangri.

Þegar ég fór til Tyrklands í sumar kom alveg ný aðferð fram sem þeir nota með góðum árangri.  Rakarinn kom með logandi kyndil og kveikti í eyrunum og nefhárunum þannig að þarna sat ég mér leið eins og sviðakjamma. 

Er að spá í að fá mér svona hanska og sokka, í sannleika sagt þá er ég farin að eldast svolítil.

 

 


mbl.is Sefur í sokkum og hönskum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðbrá.

Mér dauðbrá þegar ég las fyrirsögnina.  Það er svo margt ljót sem hefur verið að gerast síðustu misserin.

Mikið hlýt ég að hafa verið heppinn.  Þegar ég var í barnaskóla var ég lagður í einelti af bekkjarfélögum mínum og minnist ég þess að það voru líka stúlkur í þeim hóp.  Ég kom úr öðru hverfi og var þess vega kannski ekki inn hjá þeim.  Minnist þess að hafa verið eltur út á strætóstöð, kaffærður í snjó og eitt sinn þurfti bílstjórinn að koma út til að sækja mig.

Eitt sinn kýldi mig einn úr öðrum bekk  þannig að brotnaði úr tönn, næst mann ég eftir honum mörgum árum seinna og viti menn, kominn í "löggubúning".

Mig minnir að þetta hafi allt endað þegar eitt sinn ég var króaður af út í horni og adrenalínið og hræðslan tók yfirhöndina, slengdi hendi og hitti einn svona svakalega að það varð allt í blóði, kviss pang og það koma aldrei  nein nærri mér eftir það.

Sem betur fer hlít ég að hafa unnið úr þessu strax, hafði um annað að hugsa.  Auðvitað hafa ljótar hugsanir skottist upp í kollinn einhvern tímann en fortíðardraugurinn hefur látið mig vera að mestu.


mbl.is Ætlaði að pynta þau og drepa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggulaust..

Mér ofbýður ástandið í löggæslumálum í dag.  Í síðasta Kastljósþætti var verið að hneggslast á því að það hafi tekið lögregluna hátt í 20 mín. að birtast, ég tel mig vita af hverju það var engin á svæðinu.

Í Kópavogi t.d. er engin lögregluvarðstofa opin eftir 23 á kvöldin sem þíðir að ef eitthvað gerist þá gæti næsti bíll verið lengri tíma að komast á staðin vegna þess að þeir eru uppteknir við að skakka leikinn í Hafnarfirði. 

Núna les maður þetta og það sem manni grunaði "allir í sandkassaleik".  Þetta eru allt orðnar svo miklar blokkir af yfirmönnum að það er ekki hægt að halda úti almennri löggæslu. þessi er í fýlu útí þennan og hinn og svo öfugt.  Í guðsbænum leysið þessi mál og hættið þessum sandkassaleik.

 


mbl.is Lögregla í sandkassaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt úthald..

Þetta er flott hjá kappanum, til hamingju með þetta Gunnlaugur.  Var að reikna í huganum er þetta ekki 6 x maraþon ?
mbl.is Búinn að hlaupa yfir 220 km
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram stelpurnar okkar..

Ég hef fulla trú á stelpunum okkar, þær klára þetta.

Það finnst mörgum af félögum mínum skrýtið að ég skuli hafa meira gaman af kvennaboltanum hér heima en karla, það er landsliðunum en sannleikurinn er bara sá að þær spila bara léttari og skemmtilegri bolta.

ÁFRAM ÍSLAND


mbl.is Sá mikilvægasti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Láta reyna á það..

Lögfræðingar Fritzl segja tímarofa á hurðinni, setjum karl óbjóðinn þarna inn og sjáum til hvort hann losni ef ekki þá rotnar hann bara og málið dautt.

Það er óhugarlegt að hugsa til þess að svona hlutir eru að gerast um allan heim án efa.  Við erum svo einföld að trúa því að þetta geti ekki gerst hér heima en ef heimilisfaðir getur notað son sinn sem hnífakastspjald og misþyrmt börnum sínu mánuðum og árum saman án þess að við verðum vör við þá getur svona gerst hér.


mbl.is Josef Fritzl snýr heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðan það finnst..

fólk sem til er í að kaupa þýfi þá halda þessi innbrot áfram.

Þeim sem boðið er flatskjár á rugl verði hlýtur að vera ljóst að hann er eftirvill illa fenginn.  Ég held að það sé dásamleg tilfinning að sitja á síðkvöldi með sinni heitt elskuðu og horfa á stolið sjónvarp, "sikk"

Varðandi þetta með flatskjái og sumarhús þá er minni eldhætta af slíku tæki en lampatæki skilst mér svo er það lítið dýrara og fyrirferðar minna.Brotist var inn í fimm sumarbústaði í Grímsnesi.


mbl.is Brotist inn í fimm bústaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bagaleg frétt.

Þetta er væntanlega bón Georgs til ríkisins um aukin fjárframlög, það á að veita þau því við þurfum að hafa þessar þyrlur í landinu.  Það þarf að draga úr ríkisútgjöldum en ekki þarna.

Ég hef sem betur fer aldrei þurft á þessir hjálp að halda en það eiga margir líf sitt að laun þessum þyrlum.

 


mbl.is Erfitt að halda í þyrlurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband