Skil ekki hvað hægt er að teygja lopann endalaust, auðvitað eru til menn sem vilja horfa á konur sem bera sig fyrir pening, auðvitað er vændi í kringum þennan bransa maður er ekki alveg heiladauður. Ef menn vilja fá sér drátt úti í bæ þá er það þeirra mál ekki kerlinga útí bæ.
Fátt fer eins í skapið á mér eins og þegar besevisserar eru að glenna sig og vilja ákveða fyrir mig hvað ég á eða má gera.
Er þetta ekki bara sama sagan og venjulega, stjórnarandstaða skal alltaf þurfa að vera í andstöðu, samt finnst mér að Gunnar Birgisson eigi bara að halda sig heima tel það vera dómgreindarleysi að láta taka mynd af sér með dansidömur uppá arminn.
"Í lögunum er undanþáguákvæði og hefur dómsmálaráðuneytið úrsurðað að engin sannarleg rök séu gegn því að veita Goldfinger undanþágu samkvæmt þeim. "
Látum löggjafavaldið ákveða hvort þetta sé ólöglegt eður ei, ef það sannast að svo er þá loka þeir bara.
![]() |
Goldfinger enn til umræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 24.9.2008 | 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hraðastillirinn á bílnum hjá mér virkar ekki undir 40 km hraða, þannig að ég þarf að fylgjast með hraðamælinum og láta það mæta afgangi að fylgjast með blessuðu börnunum sem leið eiga um götuna.
Ég vona að þessi glæpalýður sem keyrir svona ofsa hratt fái makleg málagjöld.
![]() |
76 ökumenn myndaðir í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 23.9.2008 | 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Því miður virðist öll umfjöllun um svona ódæði verða hvattning fyrir þá sem eru óstöðugir á geði.
Fyrir nokkrum árum las ég grein um aðila sem beitti óvenjulegri aðferð við fjárkúgun en lögregla vildi ekki opinbera aðferðina þar sem hún yrði þá hugmynd fyrir þá sem voru þannig innstilltir. 'Eg kannast ekki við að sú aðferð hafi verið notuð aftur sem segir mér að þeir hafi haft rétt fyrir sér.
Maður sem tekur annars líf án sjánlegrar ástæðu er án efa ekkert að spá í þann sem verður fyrir skotinu hvað þá til þeirra sem eftir lifa. Einn þeirra sem bloggar um þessa frétt er með myndband af ódæðismanninum sem hann hefur sett á netið þannig að hann hefur verið til alls líklegur, það er mikilvægt að láta yfirvöld vita af svona myndböndum þar sem ódæðismenn hafa oft sagt frá fyrirætlunum sínu á netinu eins og sagan hefur sýnt.
![]() |
Níu látnir í Finnlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 23.9.2008 | 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þakka skalt allt gott en er ekki svigrúm fyrir frekari lækkanir og á ég þá við hjá öllum olíufurstunum ?
![]() |
Atlantsolía lækkar bensínverð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 16.9.2008 | 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Annað hvort er greinin svona illa orðuð eða innhalds laus, annað hvort ert þú í lífshættu eða ekki.
"Nokkrir klukkutímar " þetta er bara fyndið . Falleg kona en í guðs bænum svona á bara heima í "Séð og Heyrt" blaði þeirra sem vilja fylgjast með svona hlutum.
![]() |
Ásdís Rán í bráðri lífshættu í Búlgaríu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 16.9.2008 | 14:22 (breytt kl. 14:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
![]() |
Vilja að Grettir verði náðaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 16.9.2008 | 10:13 (breytt kl. 10:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið er ég orðin þreyttur á að greiða hærra eldsneytisverð vegna þess að olíufélögin eru með 5-10 manns á hverri stöð við að afgreiða pylsur og dömubindi.
Skrýtið hvað verðið lækkar lítið þegar verslað er við Orkuna ( Skeljungur in disguise ), lítil yfirbygging, sjálfsafgreiðsla, við erum ábyggilega að greiða niður rekstrarkostnað félagana.
Það er komin tími til að við nöldurseggirnir förum að gera eitthvað úr hótunum okkar og versla við eitt félag í einu.
![]() |
Óvíst hvort olíufélögin lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 15.9.2008 | 17:02 (breytt kl. 17:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
á því sem þú getur ekki klárað var einu sinni sagt, skil samt ekki af hverju þeir ræddu ekki bara við hann.
Gott að þeir skutluðu honum heim karl garminum.
![]() |
Hælisleitandanum ekið heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 14.9.2008 | 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hef oft leitt hugann að því hvað lögreglumenn eru að aðhafast meðan ég sef.
Ég efast um að menn geri sér grein fyrir eymdinni og ógninni sem þessir menn eru að takast á við hvern dag og hverja nótt meðan við sofum róleg heima.
Þeir sem hafa orðið fyrir því að brotist hefur verið inn á heimili þeirra vita að það fer allt í vörn í lífi þeirra, hver var þetta, kemur hann aftur, var þetta maðurinn í næstu íbúð, húsi? Ég reikna með að þannig hugsi lögreglumenn sem hafa þurft að hafa afskipti af drullusokkum samfélagsins.
Berum virðingu fyrir þessum mönnum, hvenær þurfum við á þeim að halda næst ?
![]() |
Ég skal drepa konuna þína! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 13.9.2008 | 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Passaðu á þér puttana var alltaf sagt við mig á yngri árum.
Ég spyr hvað var krakkinn að hugsa, alveg rétt ekki neitt nema ef vera skyldi að gera eitthvað sem þjónaði engum tilgangi. Vissulega er þessi kofi frekar " döll " sýnist þetta vera einingahús af ódýrari gerðinni en þetta var fyrst og fremst slys sem að alltaf geta orðið. Mér þykir heldur langsótt að fara draga einhvern til ábyrgðar í þessu máli nema ef vera skyldi þá sem koma henni næst. Girðing hefði komið að gagni þarna en samt ekkert sem segir að ekki yrði bara klifrað yfir hana.
Rifjast upp fyrir mér atvik þegar ungur drengur c,a, 7-10 ára nær kafnaði á sælgætishlaupi, æsifrétta miðlar hentu þessu fram sem sakamáli og spurðu drenginn hvort hann hefði einhver skila boð til annarra barna.
" Þið ættuð ekki að borða svona hlaup" voru skilaboðin, hefðu að sjálfsögðu átt að vera " munnið að tyggja áður en þið kyngið.
Ég óska ungu stúlkunni ( kemur ekki fram aldur ) als hins besta, þetta er ekkert grín að fá svona straum í gegnum sig.
![]() |
Barn fékk mikið raflost |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 13.9.2008 | 08:40 (breytt kl. 08:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1327
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar