Hann hefði getað toppað þetta ef hann hefði verið drukkinn líka, af hverju ekki að taka allan pakkann ?
Þær eru margar freistingarnar í þessu lífi, hann var samt heppinn að þeir náðu honum áður en hann verð sér og eða öðrum að fjörtjóni.
það er spurning hvort þetta leiði ekki líka til þess að hann fá ekki ökuréttindin ári seinna ?
![]() |
Réttindalaus á rúntinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 12.9.2008 | 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég keypti mér um síðustu áramót áskrift að því sem þá hét Sýn 2 þar sem ég vildi fylgjast með boltanum tímabundið. Þetta var á sérstöku tveggja mánaða tilboð 365.
Þegar tilboðinu lauk í byrjun mars hætti ég að horfa á rásina þar sem lokað er fyrir að öllu jöfnu á þeim tíma. Um miðjan mars var ég að fikta friðlaus vegna lélegrar dagsskrá ( gat alveg eins tekið mér bók í hönd ) og viti menn það var allt opið. Þá skoðaði ég kortayfirlitið og sá að þetta var enn inni og orðið mun dýrara. Ég hafði samband við stöðina og var þá tilkynnt að ég hafi átt að segja upp en það var mér aldrei sagt þannig að minn borgaði bara og sagði upp, lét með öðrum orðum taka mig.
Núna á ég 3 mánaða gjafaáskrift sem gott fyrirtæki hér í bæ gaf mér og ætla ég að fylgjast með þessum njólum að þeir TAKKI mig ekki aftur.
![]() |
Mátti ekki framlengja að áskrifanda forspurðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 11.9.2008 | 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eftirfarnandi grein var birt í norðlensku fréttablaði árið 1977, líkast til væri hún ekki birt í dag með þessu orðalagi.
Smellið á myndina til að lesa greinina
Dægurmál | 11.9.2008 | 13:59 (breytt kl. 15:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Harður árekstur á Keflavíkurflugvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 11.9.2008 | 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það kom mér á óvart hversu þessi tilraun veldur miklum ótta hjá börnum og ungmennum.
Strákarnir mínir ( 15 ára ) hafa varla rætt um annað síðan fréttin birtist á Stöð 2 og spurt mig hversvegna þessir vísindamenn eru að þessu. Að sjálfsögðu var fátt um svör. Þeir höfðu samband við félaga sína og á þeim bæ hafði þeim verið sagt að búið sé að slá tilraunina af, nú klappa tilraunamennirnir þarna úti og búnir að setja allt í gang.
Fréttin hjá Stöð 2 var sett upp sem svo að þetta það er "heimsendir" væri möguleiki í kjölfar tilraunarinnar.
Þegar ég mæti í vinnu í morgun heyrði ég samstarfsmenn mína vera ræða þetta og í ljós kom að þetta hefur líka valdi usla á öðrum heimilum.
Kannski og vonandi eru þessi börn skynsamari en við og snúa þessari þróun við.
![]() |
Hátíðarstemmning við hraðalinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 10.9.2008 | 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hvernig er hægt að fara fram á að lagðir séu akstursvegir fyrir hjól ef ekki er hægt að tvöfalda suðurlandsveg? þetta er bara bull og ekki náði þetta myndband að ergja mig uppúr skónum.
Auðvitað á ekki að aka á grónu svæði, sýndist sem svo að rok og rigning kæmi til með að laga það 90% af því sem sýnt var rest ættu hjólamenn að laga.
![]() |
Fordæma akstur utan vega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.9.2008 | 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Umfjöllunin á ekki að snúast um lækninn hann braut ekki lögin..
Nú er búið að snúa þessu máli manns sem gerist sekur um að aka undir áhrif einhvers sem ekki finnst nema með þvagsýni í andhverfu sína, maðurinn gerðist brotlegur og það þarf að hegna honum burt séð frá því hvort hann vilji pissa eða ekki..
![]() |
Læknir neitaði að taka þvagsýni með valdi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.9.2008 | 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
þetta fólk er fórnarlömb aðstæðna sem það kaus án efa ekki yfir sig.
Ef það á að fara ræða um kynþátt þá mætum við líta okkur nær, við erum mörg vel blönduð sjálf. Eitt vildi ég þó sjá að konunum yrði gert skylt að læra íslenska tungu og blandast samfélagi okkar, börnin gera þetta sjálf þannig að ekki þarf að hafa áhyggjur af þeim.
![]() |
Flóttafólkið brosti við heimkomuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.9.2008 | 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið hefur verið fjallað um mengun af hinum ýmsu orkugjöfum og hefur rafmagninu verið haldið á lofti sem hinu eina rétta.
Ekki hef ég heyrt á það minnst að þessir bílar eru skaðvaldar í umhverfi okkar en það er nú samt svo. Þeir nota mikið magn rafgeyma ( batterý) sem ekki er hægt að eyða á vistvænan hátt, sýnir best að það er lagt að okkur að skila inn rafhlöðum í stað þess að setja í ruslið, get ekki séð að rafmangsbílar geti talist grænir.
Meðfylgjandi er linkur þar sem "hybrids" er umfjöllunarefnið.
http://clubs.ccsu.edu/Recorder/editorial/editorial_item.asp?NewsID=188
Dísilvælum hefur verið fundið það til foráttu að þær megi svo mikið ( CO2 í útblæstri ). Ég fór inná orkusetur.is og setti þar inn þrjá bíla af svipaðri stærð og niðurstaðan kom mér verulega á óvart.
Miðað við 18.000 km. pr. ár. magn co2 í útblæstri:
Skoda Octavia 1.9 TDI sjálfskiptur: 2,8 tonn
Toyota Avensis 1.8 bensín sjálfaskiptur 3,5 tonn
Nissan Qashqai 2,0 bensín sjálfskiptur 3,4 tonn
Það kom mér reyndar á óvart að þetta mælist í tonnum.
Varðandi rafmagnsbíla sé ég ekki íslendiga sem hafa litla biðlund fyrir mér að bíða meðan hleðslan klárast.
![]() |
Ráðstefna um byltingu í rafmagnssamgöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 8.9.2008 | 11:45 (breytt kl. 12:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég er einn af þessu sem ákvað að fara alla leið í þessum útilegupaka og keypti mér hjólhýsi í fyrra. Áður hafði ég átt ein 4 fellihýsi. Við fjölskylda reynum að nota þetta sem mest og mættum til að mynda hverja helgi í sumar frá ap-maí að undanskyldum tveimur helgum í ágúst vegna Tyrklandsferðar.
Vagninn okkar er staðsettur að Hellishólum í Fljótshlíðinni, yndislegur staður, golf, heitir pottar, veiði og umfram allt skemmtilegt fólk það er Hellishóla hjónin og samferða fólk okkar.
Góð spá í dag þannig að það er um að gera að drífa sig, losna samt ekki úr vinnu fyrr en 16.00.
Dægurmál | 6.9.2008 | 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1327
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar