Góð áminning..

Kona sem ég sendi tölvupóst hafði sett þennan borða neðst á síðuna hjá sér, þetta er verðugt umhugsunar ( P Leiddu hugann að umhverfinu áður en þú prentar út þennan tölvupóst.).

Því er þannig farið að maður prentar oft út án þess að þess sé nokkur nauðsyn.  Í starfi mínu nota ég mikið mailið og tók mig til eitt árið og safnaði í kassa undan pappír, eftir nokkra  mánuði var hann nær fullur en ég hætti þessu þegar ég þurfti að flytja mig um set.

 


Þreytandi málsvarnir og framkoma.

Mér er spurn, er ráðuneytið að segja að það sé ósatt sem BVS segi að fram hafi komið á fundi þeirra 11.ágúst?  Það virðist vera sem svo að við fá aðeins að heyra hlið BVS þar sem ráðuneytið er komið í fýlu og ætlar ekkert að tjá sig.  Ég held að það sé rétt sem margir hér á blogginu hafa sagt að þeir hafi bara ætlað að keyra málið í gegn áður en að hægt væri að stoppa þá af, sorry það tókst ekki.

Mér finnst þetta annars frekar vonlaus barátta hjá BVS því þetta er svo rotið bitlingasamfélag sem við búum í og höfum skapað okkur með aðhaldsleysi.

Í guðs bænum ekki fara að koma með frasann um að hegna sjálfstæðismönnum í næstu kosningum þið kjósið þá aftur eins og ég og verðið búin að gleyma þessu öllu.  Ísland eru kaffistofusamfélag sem er alltaf tilbúið að gagnrýna en framkvæmir aldrei hótanir sínar.

Það sem er þó verst er að það er sama hvað  kosið er það er sama rass...  undir þessu öllu, eiginhagsmuna potarar sem eru tilbúnir að ganga á bak orða sinna og við gerum ekkert í því.

Nú væri gott að hafa Davíð hann var þó fyndinn og skemmtilegur...


mbl.is Vonbrigði að fá ekki nauðsynlegt svigrúm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveitabrúðkaup

afar skemmtileg mynd þokkalegur leikur en... íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru alltaf úti að aka í hljóðinu þess vegna ætti myndin heima í vondabíó
mbl.is Svo lélegar að þær eru góðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið, bless..

Þetta er svona búið bless frétt, yfirheyrðir búið, bless en samt gott hjá löggunni að sýna þessum kónum að þeir eru undir eftirliti þó það hafi því miður lítið að segja.
mbl.is Tveir handteknir í kjölfar húsleitar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvæg tilkynning ..........

Kæru vinir...

  
Geimverur koma til jarðar á laugardag og takmark þeirra er að fanga allar fallegar og sexí manneskjur. 

 Þú er óhult/ur en þetta blogg er bara til að segja BLESS

Hvað kostaði túrinn?

Það er gott að Árni og co lögðu sitt í púkkið þó ég hefði persónulega ekki valið þann mann í frontinn.

Fóru Lýsingarmenn virkilega með græjurnar alla leið í bæinn?  Hvað kostaði það eiginlega, lögfræðingagengið og vörslusviptinga liðið ?  Ekki þekki ég forsöguna nema af því sem ég hef lesið á mbl. en tel að það ágæta fyrirtæki Lýsing sem að mínu mati hefur staðið sig best lánafyrirtækja núna á síðustu og verstu tímum með frábæri markaðssetningu hafi sett sig svolítið niður við þetta.  Það er gott að Ástþór er búinn  að fá tækin.

 Ólafur hjá Mjólku þú ert bestur, þú reddaðir þessu af alkunnri snilld og miskunnsemi. þakka þér fyrir það starf sem þú lagðir til við styrktartónleikana hér um árin, það var frábært framtak sem verður minnst en  því miður var eyðilagt.


mbl.is Þetta er eins og að fá fæturna aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers virði er ein svona nefnd ?

 

Ég treysti mér ekki til að verðmeta eitt manslíf en það er víst að þessir drengir urðu síðan menn og feður og svo framvegis þannig að eftirköstin hafa snert marga.   Þegar þetta mál komst í hámæli fór maður að líta í kringum sig og áttaði sig á að nokkrum af þessum drengjum hef ég kynnst og aðra hitt á lífsleiðinni.  Djúp eru þau sár sem sál þeirra hefur þurft að bera allan þennan tíma. Núna skilur maður að hluta margt sem þeir tóku sér fyrir hendur og lentu í á lífsleiðinni. Ég man að þegar ég var lítill þá var oft rætt um Breiðuvík og strax þá voru sögurnar ekki fagrar en barn ber ekki skynbragð á alvarleika málsins.

Varðandi bætur til þessara manna þá spyr ég hvað kostaði nefndin sem unnið hefur að þessu frumvarpi, ef ég þekki mitt fólk rétt þá er það allnokkuð meira en sem nemur bótunum.  

Ég segi eins og einu sinni var sagt, borgið það mikið að þið finnið fyrir því ef það er gert þá gerist svona aldrei aftur.

Þið strákar og stúlkur sem lentuð í þessu þetta er smánar blettur á íslenskum stjórnvöldum, þið eigið meira og betra skilið.

 


mbl.is Telja bætur of lágar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá rugl í þýðingu.

Hann hefur án efa ruglast á ró og skrúfu í orðabókinni ( screw you).  Þegar ég las þetta þá rifjaðist upp hjá mér eftirfarandi.

Maður nokkur stóð við hlið blökkumanns á pisseríinu. 

Þegar hann sá prinsinn spurði hann hvernig þeir færu

af því að fá svona langa svaraði sá svarti:  Við hengjum alltaf lóð

á vininn og það er allt sem þarf.

Skömmu seinna hittir hann vin sinn á götu og vinurinn spyr hversvegna hann gangi

svona skringilega og hann segir honum alla sólarsöguna og að hann sé með lóð í vininum, hinn spurði þá hvernig gengi ?

Ágætlega, ég er búinn að ná LITNUM ! ( svartur)

Góðar stundir

 


mbl.is Festi ró á getnaðarlimnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látið mig þekkja það...

ég varð sjálfur þeirra forréttinda að njótandi að konan mín og ég eignuðumst þríbura fyrir tæpum 16 árum.  "Þetta er erfitt fyrst og svo smá versnar það" sagði þríbura foreldri við mig í gríni þegar við vorum að bögglast með þau út og suður.  Hjá okkur fórum við úr fjögra manna fjölskyldu í sjö þannig að þið eigið vinninginn átta.  Í gríni sagði félagi okkar hann Pétur einu sinni á opinberum vetfangi að hann hafi þurft að leita að bílum hjá umferðamiðstöðinni, þau voru líka átta í fjölskyldu.

Þegar okkar börn fæddust urðu þau fyrsta parið ( tveir drengir og ein stúlka )  sem félagar mundu eftir aðrir voru 3 drengir þrjár stúlkur eða tvær stúlkur og einn drengur,  eftir það er þessi blanda orðin mun algengari.

Óska ykkur góðrar og gleðiríkrar framtíðar stórfjölskylda.

 

Félag þríburaforeldra var stofnað 1993 í maí og eru félagar í dag rúmlega fimmtíu.

Fyrir þá sem langa til að skoða heimasíðu félagsins þá er hún: http://thriburafelag.barnaland.is/page/23095


mbl.is Fengu þrjú börn á einu bretti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lofsvert framtak..

hjá Ólafi, það er alltaf gaman þegar málin enda vel.  Það er rétt að í þessum leigumálum eiga lánafyrirtækin tækin en það er kannski full langt gengið að leyfa ekki frestinum að renna út.  Svona hlutir gerast reyndar ekki bara hjá Lýsingu heldur öllum hinum fjármögnunar félögunum  líka, Lýsing er ekkert verri.  Gaman þætti mér að vita hvað lögfræði kostnaður í svona máli er mikill,vörslusvipting er heldur ekki gefin. 

Ég vona að bóndanum gangi vel i því sem hann er að iðja og í ljósi þessi máls fari varlega í skuldbindingum, við þurfum reyndar öll að gera það.

En gleymum ekki miskunnsama samverjanum Mjólku og stjórnendum fyrirtækisins, nú ættu menn að sýna ánægju sína í verki og kaupa vörur frá þeim ef völ er á og hætta að hampa þeim sem sitja heima aðgerðalausir

Fulla ferð Ástþór , fulla ferð Ólafur

 

 


mbl.is Fékk styrk til að leysa út vélarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband